Fyrirtækið
| |
|
|
Hvellur.com er fyrirtæki sem byggir á
gömlum merg. Upphaflega var um að ræða verktakafyrirtæki
á Grenivík í eigum þeirra frænda
Ásgeirs Kristinssonar og Óskars Valdemarssonar.
Á árinu 1988 skildu leiðir þeirra frænda og Óskar flutti í
höfuðborgina og rak sitt fyrirtæki fyrst í Súðarvogi 36, því næst á
Smiðjuvegi 30, síðan var flutt að Smiðjuvegi 4c og loks að Smiðjuvegi
8 græn gata. Þann 2 Maí 2005 flutti fyrirtækið enn einu
sinni og þá aftur á gamlar slóðir eða í Súðarvog 6 í Reykjavík, dvölin
þar var ekki löng því 5. Október 2007 flutti Hvellur á Smiðjuveg 30
(rauð gata). |
|
|
|
Áræðni og dugnaður Óskars var vel þekkt
í viðskiptalífinu - en örlgögin höguðu
því þó þannig að hann varð heilsu
sinnar vegna að láta af öllum viðskiptum. Hvellur.com
varð til í kjölfarið enda viðskipti á netinu
að verða vaxandi þáttur í daglegu lífi
fólks - nánast hvar sem er í heiminum.
Hvellur.com hefur verið brautryðjandi á sölu á
reiðhjólum fyrir alla fjölskylduna svo og keppnisfólk.
Hvellur.com er lang stærsti aðili í innflutningi á
keðjum fyrir allar gerðir farartækja. Keðjuviðgerðir
eru orðinn stór hluti af rekstri okkar.
Hvellur.com ehf í Reykjakvík hefur á síðustu
árum með nánu samstarfi við Crime on Line unnið
brautryðjendastarf í skráningu reiðhjóla, með
því að skrá og hvetja viðskiptavini sína
til að skrá seld reiðhjól á gagnagrunn Crime
on Line. Þessi skráning ætti að vera forsenda fyrir
bótarétti tryggingafélaga vegna tapaðra og eða
stolinna reiðhjóla.
Með tilkomu nýs vefs, erum við að auðvelda viðskiptavinum okkar að ná til
upplýsingar um vörur okkar og þjónustu. Framkvæmdastjóri og eigandi Hvells
er Guðmundur Tómasson en hann og fjölskylda hans keypti fyrirtækið 15.
janúar 2004.
|